Persónuupplýsingar

PERSÓNUVERNDARSTEFNA ALMENNT 

Persónuverndarstefna Sunday & co. er í meginatriðum að vernda persónulegar upplýsingar viðskiptavina sinna. Sunday & co. mun ekki láta upplýsingar á borð við tölvupóstföng, heimilisföng, símanúmer, tölvupóstssamskipti eða aðrar persónuupplýsingar til þriðja aðila án samþykkis viðskiptavinar nema samkvæmt lögum eða dómsúrskurði.

NETVERSLUN

Þegar þú kaupir vörur í netversluninni okkar þarftu að gefa upp persónuupplýsingar eins og t.d. nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer. 

NETFÖNG

Þegar þú skráir þig í netverslunina fer netfangið þitt á póstlista. Þú getur skráð þig af póstlistanum með því að smella á vefslóð í pósti sem sendur er á netfangið þitt.

MEÐHÖNDLUN UPPLÝSINGA

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Það sem þú deilir með okkur fer ekki lengra nema ef það, að okkar mati, varði við lög. Við ábyrgjumst að við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar til ótengdra aðila.

Eins og gefur að skilja þurfum við í sumum tilvikum að deila með öðrum fyrirtækjum upplýsingum sem þau þurfa til að geta veitt okkur, og á endanum þér, þjónustu. Við þurfum t.d. að láta flutningsaðila fá heimilisfangið þitt og símanúmer svo vörurnar þínar komist til skila.

Sendingar úr kerfi netverslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir netverslunarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Með því að gefa upp annað heimilisfang en þitt eigið gengst þú við því að hafa til þess leyfi frá þeim sem veita á vörunni/sendingunni viðtöku.

Kaupandi hefur rétt til að fá að sjá þær upplýsingar sem Sunday & co. hefur um hann. Hafi kaupandi eitthvað út á þær að setja hefur hann rétt til að fá þær leiðréttar eða afmáðar án kostnaðar.

 

Athugaðu: Upplýsingar fyrir greiðslu á vörum eins og kortaupplýsingar eru ætíð sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun. Slíkar upplýsingar eru ekki unnar á vefsvæði okkar.